Söfn

   

21.02.2012 03:20

Aðalfundur

Aðalfundur Fornvélafélags Íslands 2012 verður haldinn Laugardaginn 24 mars kl 14:00. Vinsamlegast takið frá tíma fyrir þennan fund.Fundarefni verður kynnt síðar.  Fundurinn verður að þessu sinni í Kríunesi Vatnsenda Reykjavík.



 

 

 

 

Kríunesið er í Kópavogi staðsett við Elliðavatn, vestanmegin í landi Vatnsenda. Um 15 km. frá miðbæ Reykjavíkur.

Stutt er í ýmsa þjónustukjarna s.s. Smáralind (ca.6. km.) og Mjódd (ca.5. km.)

Strætó gengur í hverfið og er ca. 10 mín. gangur í næstu strætóstöð.

Akstursleiðbeiningar frá Mjódd
Ekið eins og leið liggur upp Breiðholtsbraut, yfir umferðarljós með Shell /Select á vinstir hönd í efra Breiðholti. Ekið beint yfir næstu umferðarljós, efra Seljahverfi á hægri hönd. Breiðholtið kveður og keyrt er niður í Víðidalinn, Kópavogur og Vatnsendavegur nálgast á hægri hönd, Víðidalurinn, Elliðaárnar og hesthúsahverfi Fáks nálgast á vinstri hönd.

Beygja til hægri (vegur no. 410) rétt fyrir ljósin (ekki aka yfir brúnna yfir Elliðaá) og keyrt inn Vatnsendaveg, haldið áfram upp aflíðandi brekku með atvinnuhúsnæði á hægri hönd.

Komið að hringtorgi og fylgt síðustu beygju út, komið að öðru hringtorgi og þú einnig tekur síðustu beygju út og niður að Elliðavatni.

Gott væri ef menn létu vita með mætingu til dæmis í athugasemdakerfinu eða senda mér póst

20.02.2012 21:58

Ford 7000 ?????

Hjalti Stefánsson
myndatökumaður
Tókastöðum II
701 Egilsstöðum
s. 8617040
 

Það væri áhugavert að vita hvort FORD 7000 traktorar hafi verið fluttir inn hingað til lands. Þeir voru framleiddir á árunum 1971- 1975. FORD 7000 er keimlíkur 5000, nema hann er með túrbínu og er því 94 hestöfl. 5000 er 75 hö. Það væri gaman að frétta af því ef menn vita af  7000 hér á landi. Ég hef grun um að nokkrir slíkir hafi verið fluttir inn. A.m.k fann ég auglýsingu í DV í febrúar 1987 þar sem notaður 7000 var auglýstur til sölu.  Arftakinn, 7600 var fluttur inn

á árunum 1975- 81 og er slæðingur til af þeim.

20.02.2012 21:27

Landbúnaðarsýningin í Laugardalshöll 1968

Finnur Eiríksson sendi þetta efni. Hér eru 2 myndir sem bróðir minn heitinn Guðbrandur Búi Eiríksson tók á  Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll 1968.



20.02.2012 20:50

Gamlar myndir (seinnihluti)

Myndefni frá Starri.


Fordson á Litla hamri



Kubbur fyrir ofan Vín



????



Fordson var á ruslahaugunum á Hólmavík.




Valtarinn var á Hólmavík


Ég held að næsta syrpa sé tekin á Garðstöðu















síðustu tvær frá Veisuseli   Poni og Ford n8



17.02.2012 17:29

Fraser Dráttarvél

Fraser dráttarvél hefur verið á Syðri Grund Svarfaðardal. Ég rakst á gamla auglýsingu á tímarit.is úr Degi í febrúar 1950.



Ég fann lítið um Fraser dráttarvélar en um 1948 voru smíðaðar um 5000 stk Fraser model-T. Spurning hvort það séu þessar vélar. Fraser smíðaði áður eingöngu tveggja hjóla herfi eða eitthvað slíkt og sennilega Kaiser bíla án þess að ég viti það en verksmiðjan stöðvaðist í seinni heimstyrjöldinni.
Ég fann þetta hér: http://www.donaldantiquerototillers.com/GrahamPaige.html





Hvað er vitað um þetta? Þetta er ekki svo gömul vél að það hlýtur einhver að muna eftir þessu.

16.02.2012 18:48

Gamlar myndir.

Starri sendir þetta efni.


Hólakot (Örnólfur) Nalli kubbur og Farmal A.


Farmal A, óþekkt hvít vél og Ferguson.


Rúsneska vélin sem er blá með gult veltibúr var innarlega í vestanverðum Eyjafirði (man ekki bæjarnafnið)  Ég sá þessa vél síðast hjá Örnólfi í Hólakoti.




Bær rétt hjá Steinhólaskála.  Þar var 52 Chevrolet á hertrukksgrind og jarðýta. Þar rétt hjá var líka Deutz og steypihrærivél.




Fellshlíð í Reykjadal var Steypihrærivél Ýta og tveir Nallar 10/20.  Annar þeirra er nú í Ystafelli.













Á Litla Hamri í Eyjafirði var Fordson ásamt beltabúnaði.  (gæti verið að sá búnaður hafi endað í Ystafelli)

Á Helgasöðum (Völundur) var grænn traktor á Willys hásingum.  Sá þá vél síðast í uppgerð á Hólakoti en Völundur átti hana alla vega þá ef ekki en.

Fyrir ofan Vín var svo Kubbur með greiðu.




Öxl í Húnavatnssýslu státaði af tvemur Unimogum.







14.02.2012 18:16

Unhóll í Þykkvabæ

12.2.2012 fór meirihluti stjórnar í heimsókn á bæinn Unhól í Þykkvabæ. Þar var margt að sjá hjá Pálmari Guðbrandsyni og bróðir hans Sveini Guðbrandssyni. Pálmar tók á móti okkur og sýndi okkur vélarnar.   Gísli B Gíslason formaður tók myndir.

 

Fyrst sjáum við Fordon Dexta 1958 Þessi vél kom ný í Tobbakot Þykkvabæ. Það stendur til að fara að gera þessa vél upp og búið er að kaupa töluvert af varahlutum í hana.

Það er einnig Farmall Cub óuppgerður sem kom ofan úr Borgarfirði en ekki náðist mynd af henni þar sem ekki var hægt að komast að henni.

 

Ferguson gráni með Standard diesel mótor árgerð 1955. Þessi vél kom frá Áshóli Þykkvabæ.

 

Hérna er Massey Ferguson 35x kom ný á Tumastaði sem settur var mótor úr MF 135 og varð vélin lengri fyrir vikið og gamla

vélarhlífin passaði ekki þannig að hlífin af MF 135 var einnig sett á hana.

Eigandi er Ágúst Erling Kristjánsson stjórnarmaður. Afi hans mun hafa átt þessa vél er líklega frá Torfastöðum og var notuð á steipustöð þar og átti Bergur Kortsson hana í upphafi. (ATH leiðréttur texti)

 

Zetor 4718 árgerð 1974 Kom frá Bjarna Sighvatssyni Vestmannaeyjum.

 

Hér er Ford 3000 Kemur frá Hannesi Dagbjartssyni Þúfu  í Landssveit.



Massey Ferguson 35 Gráni Gullbelgur Árgerð 1957. Þessi vél kom ný í Unhól. 

 
Massey Ferguson 35 Árgerð 1958 kom frá Jóni í Vatnskoti. Sennilega var ekki notaður réttur grunnur á vélina og er lakkið farið að flagna frá. Þetta getur verið mikið áfall að lenda í þessu þar sem lökkog efni til málunar eru dýr. Það stendur til að lakka hana að nýju.




Massey Ferguson 65 árgerð1959. Þessi vél kom ný í Tobbakot.




Massey Ferguson 135 árgerð 1972 kemur frá Kristjóni Pálmarssyni í Tobbakoti.




Þessi Bensín gráni ásamt vélinni á myndinni fyrir neðan þessa Komu á bíl frá Mýrdal og voru þetta þrjú hræ sem hægt var að gera tvær úr.



Frá Mýrdal.

 David Brown 880 frá Nýja Bæ.

11.02.2012 14:57

Gamall Chervolet vörubíll

Víkingur Birgisson Grænuhlíð á Skeiðum var að eignast þennan glæsilega vörubíl. Þessi bíll virðist mjög heillegur. Margir vildu gjarnan eiga svona gamla bíla. Ég fæ væntanlega sögu þessa bíls fljótlega.

Áhugamannafélag

Nafn:

Vefsíða. http://oldtractors.123.is/

Farsími:

8564452

Afmælisdagur:

Vefsíða 18.10.2010 Fornvélafélag Íslands 19.3.2011

Heimilisfang:

Hvolsvöllur

Staðsetning:

Iceland

Um:

Vefsíðan er eign Gísla Birgirs Gíslasonar. Þessi vefsíða hýsir allt efni Fornvélafélags Íslands stofnað 19.3.2011.

Kennitala:

460511-2830

Auglýsingar

         

Tenglar

Viltu gerast félagi í Fornvélafélagi Íslands

Umsókn um félagsaðild:  

Félagsgjald árgjald 5000 kr 

Sendið póst á oldtractor@internet.is

Setjið fullt nafn og kennitölu og ekki verra að hafa smá upplýsingar um dráttarvélaeign.
En það er öllum frjálst að ganga í félagið og engin skylda að eiga dráttarvélar.

Allir að vera með þá eignumst við öflugt og sterkt félag

Varahlutapantanir

Get útvegað varahluti í flestar gerðir dráttarvéla þó ekki þýskar dráttarvélar
Í flestum tilfellum eru verðin betri en það sem er í boði í dag.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fyrirspurnir og pantanir á varahlutum þurfa innihalda tegund og gerð árgerð ásamt nafni og síma
sendist á
oldtractors@internet.is
Flettingar í dag: 244
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 734
Gestir í gær: 223
Samtals flettingar: 502122
Samtals gestir: 84849
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 08:23:06