Free counters Þessi teljari er aðalega notaður til að sjá erlenda umferð og er ekki aðalteljari síðunar. Aðalteljari síðunnar er neðarlega á síðunni.
Færslur: 2012 Febrúar
23.02.2012 22:37
Á ferðalagi um Íslendingabyggðir árið 2004.
Myndirnar af traktorunum í Ameríku tók ég er ég var á ferðalgi um Íslendingabyggðir árið 2004.
Stóri Allis Chalmers traktorinn er í einkaeigu nærri bænum Cavalier í Norður Dakota.
Traktorinn sem er í akstri var á bæjarhátíð í Akra ND.
Gamli traktorinn bíður uppgerðar ásamt mörgum öðrum á Íslendingasafninu í ND.
Grái Case-inn er á safni í Winnipeg og það voru afturhjólin á honum sem vöktu sérstaka athygli mína.
Þau eru smíðuð úr vinklum og flatjárni.
Traktorarnir á sölunni eru í Árborg í Manitoba (Nýja Íslandi).
Mótorinn er úr Ferguson TEA20 sem ég er að dunda við að gera upp.
Ég reif mótorinn algjörlega og skoðaði hann. Legurnar voru eins og nýjar en hringirnir voru
kolfastir í stimplunum og mikið verk að ná þeim úr og hreinsa stimplana.
Slífarnar þurfti rétt að hóna og slit í þeim vel innan marka.Ventla og sæti þurfti að renna.
Ég prufukeyrði síðan vélina í rúma klst.Þegar hún var orðin köld herti ég upp heddið og
stillti ventlana og svo bíður mótorinn bara ísetningar þegar verður búið fara í aðra hluti.
Kv. Birgir Ingólfsson
Mótor TEA20
20.02.2012 21:58
Ford 7000 ?????
myndatökumaður
Tókastöðum II
701 Egilsstöðum
s. 8617040
Það væri áhugavert að vita hvort FORD 7000 traktorar hafi verið fluttir inn hingað til lands. Þeir voru framleiddir á árunum 1971- 1975. FORD 7000 er keimlíkur 5000, nema hann er með túrbínu og er því 94 hestöfl. 5000 er 75 hö. Það væri gaman að frétta af því ef menn vita af 7000 hér á landi. Ég hef grun um að nokkrir slíkir hafi verið fluttir inn. A.m.k fann ég auglýsingu í DV í febrúar 1987 þar sem notaður 7000 var auglýstur til sölu. Arftakinn, 7600 var fluttur inn
á árunum 1975- 81 og er slæðingur til af þeim.20.02.2012 21:27
Landbúnaðarsýningin í Laugardalshöll 1968
20.02.2012 20:50
Gamlar myndir (seinnihluti)
Myndefni frá Starri.
Fordson á Litla hamri
Kubbur fyrir ofan Vín
????
Fordson var á ruslahaugunum á Hólmavík.
Valtarinn var á Hólmavík
Ég held að næsta syrpa sé tekin á Garðstöðu
síðustu tvær frá Veisuseli Poni og Ford n8
17.02.2012 17:29
Fraser Dráttarvél
Ég fann lítið um Fraser dráttarvélar en um 1948 voru smíðaðar um 5000 stk Fraser model-T. Spurning hvort það séu þessar vélar. Fraser smíðaði áður eingöngu tveggja hjóla herfi eða eitthvað slíkt og sennilega Kaiser bíla án þess að ég viti það en verksmiðjan stöðvaðist í seinni heimstyrjöldinni.
Ég fann þetta hér: http://www.donaldantiquerototillers.com/GrahamPaige.html
Hvað er vitað um þetta? Þetta er ekki svo gömul vél að það hlýtur einhver að muna eftir þessu.
16.02.2012 18:48
Gamlar myndir.
Hólakot (Örnólfur) Nalli kubbur og Farmal A.
Farmal A, óþekkt hvít vél og Ferguson.
Rúsneska vélin sem er blá með gult veltibúr var innarlega í vestanverðum Eyjafirði (man ekki bæjarnafnið) Ég sá þessa vél síðast hjá Örnólfi í Hólakoti.
Bær rétt hjá Steinhólaskála. Þar var 52 Chevrolet á hertrukksgrind og jarðýta. Þar rétt hjá var líka Deutz og steypihrærivél.
Fellshlíð í Reykjadal var Steypihrærivél Ýta og tveir Nallar 10/20. Annar þeirra er nú í Ystafelli.
Á Litla Hamri í Eyjafirði var Fordson ásamt beltabúnaði. (gæti verið að sá búnaður hafi endað í Ystafelli)
Á Helgasöðum (Völundur) var grænn traktor á Willys hásingum. Sá þá vél síðast í uppgerð á Hólakoti en Völundur átti hana alla vega þá ef ekki en.
Fyrir ofan Vín var svo Kubbur með greiðu.
Öxl í Húnavatnssýslu státaði af tvemur Unimogum.
14.02.2012 18:16
Unhóll í Þykkvabæ
12.2.2012 fór meirihluti stjórnar í heimsókn á bæinn Unhól í Þykkvabæ. Þar var margt að sjá hjá Pálmari Guðbrandsyni og bróðir hans Sveini Guðbrandssyni. Pálmar tók á móti okkur og sýndi okkur vélarnar. Gísli B Gíslason formaður tók myndir.
Fyrst sjáum við Fordon Dexta 1958 Þessi vél kom ný í Tobbakot Þykkvabæ. Það stendur til að fara að gera þessa vél upp og búið er að kaupa töluvert af varahlutum í hana.
Það er einnig Farmall Cub óuppgerður sem kom ofan úr Borgarfirði en ekki náðist mynd af henni þar sem ekki var hægt að komast að henni.
Ferguson gráni með Standard diesel mótor árgerð 1955. Þessi vél kom frá Áshóli Þykkvabæ.
Hérna er Massey Ferguson 35x kom ný á Tumastaði sem settur var mótor úr MF 135 og varð vélin lengri fyrir vikið og gamla
vélarhlífin passaði ekki þannig að hlífin af MF 135 var einnig sett á hana.
Eigandi er Ágúst Erling Kristjánsson stjórnarmaður. Afi hans mun hafa átt þessa vél er líklega frá Torfastöðum og var notuð á steipustöð þar og átti Bergur Kortsson hana í upphafi. (ATH leiðréttur texti)
Zetor 4718 árgerð 1974 Kom frá Bjarna Sighvatssyni Vestmannaeyjum.
Hér er Ford 3000 Kemur frá Hannesi Dagbjartssyni Þúfu í Landssveit.
Massey Ferguson 35 Gráni Gullbelgur Árgerð 1957. Þessi vél kom ný í Unhól.
Massey Ferguson 35 Árgerð 1958 kom frá Jóni í Vatnskoti. Sennilega var ekki notaður réttur grunnur á vélina og er lakkið farið að flagna frá. Þetta getur verið mikið áfall að lenda í þessu þar sem lökkog efni til málunar eru dýr. Það stendur til að lakka hana að nýju.
Massey Ferguson 65 árgerð1959. Þessi vél kom ný í Tobbakot.
Massey Ferguson 135 árgerð 1972 kemur frá Kristjóni Pálmarssyni í Tobbakoti.
Þessi Bensín gráni ásamt vélinni á myndinni fyrir neðan þessa Komu á bíl frá Mýrdal og voru þetta þrjú hræ sem hægt var að gera tvær úr.
Frá Mýrdal.
David Brown 880 frá Nýja Bæ.
11.02.2012 14:57
Gamall Chervolet vörubíll
Víkingur Birgisson Grænuhlíð á Skeiðum var að eignast þennan glæsilega vörubíl. Þessi bíll virðist mjög heillegur. Margir vildu gjarnan eiga svona gamla bíla. Ég fæ væntanlega sögu þessa bíls fljótlega.
- 1
- 2
