Free counters Þessi teljari er aðalega notaður til að sjá erlenda umferð og er ekki aðalteljari síðunar. Aðalteljari síðunnar er neðarlega á síðunni.
14.02.2012 18:16
Unhóll í Þykkvabæ
12.2.2012 fór meirihluti stjórnar í heimsókn á bæinn Unhól í Þykkvabæ. Þar var margt að sjá hjá Pálmari Guðbrandsyni og bróðir hans Sveini Guðbrandssyni. Pálmar tók á móti okkur og sýndi okkur vélarnar. Gísli B Gíslason formaður tók myndir.
Fyrst sjáum við Fordon Dexta 1958 Þessi vél kom ný í Tobbakot Þykkvabæ. Það stendur til að fara að gera þessa vél upp og búið er að kaupa töluvert af varahlutum í hana.
Það er einnig Farmall Cub óuppgerður sem kom ofan úr Borgarfirði en ekki náðist mynd af henni þar sem ekki var hægt að komast að henni.
Ferguson gráni með Standard diesel mótor árgerð 1955. Þessi vél kom frá Áshóli Þykkvabæ.
Hérna er Massey Ferguson 35x kom ný á Tumastaði sem settur var mótor úr MF 135 og varð vélin lengri fyrir vikið og gamla
vélarhlífin passaði ekki þannig að hlífin af MF 135 var einnig sett á hana.
Eigandi er Ágúst Erling Kristjánsson stjórnarmaður. Afi hans mun hafa átt þessa vél er líklega frá Torfastöðum og var notuð á steipustöð þar og átti Bergur Kortsson hana í upphafi. (ATH leiðréttur texti)
Zetor 4718 árgerð 1974 Kom frá Bjarna Sighvatssyni Vestmannaeyjum.
Hér er Ford 3000 Kemur frá Hannesi Dagbjartssyni Þúfu í Landssveit.
Massey Ferguson 35 Gráni Gullbelgur Árgerð 1957. Þessi vél kom ný í Unhól.
Massey Ferguson 35 Árgerð 1958 kom frá Jóni í Vatnskoti. Sennilega var ekki notaður réttur grunnur á vélina og er lakkið farið að flagna frá. Þetta getur verið mikið áfall að lenda í þessu þar sem lökkog efni til málunar eru dýr. Það stendur til að lakka hana að nýju.
Massey Ferguson 65 árgerð1959. Þessi vél kom ný í Tobbakot.
Massey Ferguson 135 árgerð 1972 kemur frá Kristjóni Pálmarssyni í Tobbakoti.
Þessi Bensín gráni ásamt vélinni á myndinni fyrir neðan þessa Komu á bíl frá Mýrdal og voru þetta þrjú hræ sem hægt var að gera tvær úr.
Frá Mýrdal.
David Brown 880 frá Nýja Bæ.
