Free counters Þessi teljari er aðalega notaður til að sjá erlenda umferð og er ekki aðalteljari síðunar. Aðalteljari síðunnar er neðarlega á síðunni.
12.05.2012 07:40
Myndir Búvélar 1947
Heimild: timarit.is - Búfræðingurinn 1. tölubl. 1947
Gaman væri að vita hvort þessi tæki séu almennt til enn. Endilega notið Athugasemdir til að koma því á framfæri sem þið viljið.
12.05.2012 07:00
Stutt yfirlit yfir búvélar 1947
Heimild: timarit.is Búfræðingurinn 1tölubl 1947
Stutt yfirlit um búvélar
eftir: Guðmund Jónsson og Pálma Einarsson.
07.05.2012 06:16
Gestir á oldtractors.is
100.000.
Þá er komið að því Eitt hundrað þúsund gestir á vefsíðuna sem er 16 mánaða gömul. Þetta er stórkostlegt afrek og sýnir hvað það er gríðarlegur áhugi á gömlum landbúnaðartækjum og uppgerð á þeim. Það hefur komið mörgum á óvart hvað þessi áhugi er mikill. Enda má finna í mörgum skúrum menn að grúska í gömlum dráttarvélum. Þó að margt hafi tapast af einstökum vélum og vélartegundum þá hefur miklu verið bjargað. Nú komið sumar og vonandi verða menn duglegir að fara út með tækin og mynda þau og senda á oldtractors.is hægt er að senda myndir á oldtractors@internet.is
Gleymum ekki fylgihlutum dráttarvélana: Plógar, áburðardreifarar, múgavélar, sláttuvélar og margt fleira. Þetta eru hlutir sem fylgja vélunum. Látum þetta ekki enda í ruslinu.
Það verða viðburðir í allt sumar og langar síðustjóra að mæta á þá en það verður eftir efnum og ástæðum hvort það verður hægt. Þá treysti ég einnig á aðra að senda mér efni sem ég mun birta hér á vefsíðunni. Til hamingju allir þeir sem hafa verið duglegir að skoða síðuna og senda efni.
06.05.2012 20:09
Sunnlenskir Sveitadagar 2012
Fornvélafélag Íslands stóð fyrir sýningu á gömlum dráttarvélum. Jötunn Vélar stóðu fyrir viðburðinum í heild sinni. Margt var í gangi og mörg fyrirtæki buðu upp á smakk. Sýnd voru helstu húsdýrin, menn fóru í baggakast, andlitsmálun og margt fleira.
Fleiri myndir í Myndaalbúmum.
04.05.2012 23:32
Deutz 5206 Strandahjáleiga II
Daníel Gunnarsson Strandahjáleigu II á einn Deutz D-5206A 4x4 sem hann taldi að þessar vélar séu fyrsta árgerð með fjórhjóladrifi. Hann telur vélina vera árgerð 1971 árgerð. Tækin eru af annarskonar vél smíðuð á þessa. Með smá könnun um málið þá virðist Daniel hafa fengið rangar upplýsingar enda þóttist ég hafa heyrt annað Deutz kom fyrst með fjórhjóladrifi til Íslands 1968 og var sýndur á landbúnaðarsýningunni þá. Bræðurnir Guðmundur og Þorsteinn Kjartanssynir frá Svelgsá í Helgafellssveit gerðu upp og eiga þá vél sem er Deutz D 4006 árgerð 1968. Hér er fjallað um þá vél á heimasíðu Landbúnaðarsafns Íslands http://www.landbunadarsafn.is/frettir/nr/71915/
Samkvæmt www.tractordata.com þá er D 5206A framleidd frá 1974 til 1981. Þannig að Daníel getur unað vel við sitt þar sem hann er sennilega með mun yngri vél en hann taldi enda hún í notkun á bænum. Mótor: 3 cylindra loftkældur 51 hestafl ( F3L912 )
04.05.2012 23:27
100.000 gestir á vefsíðu oldtractors
Þá er að koma að því um 100.000 gestir á vefsíðu http://oldtractors.is Sennilega gerist það á degi Sunnlenskra sveitadaga eða deginum eftir. Þetta eru frábærar undirtektir á ekki eldri heimasíðu en þetta.Rétt rúmlega eins árs gömul.
04.05.2012 22:14
Undirbúningur fyrir morgundaginn
Massey Ferguson 35x og Árni Pálsson frá Riddaragarði nýr stjórnarmaður að gera klárt
Massey Ferguson 35
Farmallin þurfti drátt í gang
Fordson Major
Fordsonin hans Böðvars Inga Sigurðssonar.
Haukur bílstjóri starfsmaður Þórðar
Þórður frá Bakkakoti.
- 1
- 2
