Free counters Þessi teljari er aðalega notaður til að sjá erlenda umferð og er ekki aðalteljari síðunar. Aðalteljari síðunnar er neðarlega á síðunni.
Flokkur: Fundir Félagssins
24.03.2012 21:32
Aðalfundur 2012 Kríunesi.
Aðalfundi Fornvélafélafélags Íslands lauk um miðjan dag 24 mars 2012. Hann var haldinn á Kríunesi á Vatnsenda í Reykjavík. Fundurinn var skemmtilegur og fróðlegur og lauk með prýði. Formaðurinn mætti með smá góss til að sýna mönnum: Mótor úr Lanz Alldog 1315 árgerð 1957 og gírkassa úr Deutz F1L712 13 hp árgerð 1957. Fundarstjóri var Helgi Magnússon. Lesin var skýrsla stjórnar og birtur ársreikningur félagsins og samþykktur. Einnig fóru fram kosningar í stjórn og urðu þar mannabreytingar. Örn Hrólfsson hafði óskað lausnar úr stjórn en mun starfa samt sem áður með félaginu og var tilnefndur Árni Pálsson Riddaragarði sem hlaut kosningu. Aðrir í stjórn og formaður með talinn sitja áfram. gert var hlé á fundi og drukkið kaffi. Fundi var síðan áfram haldið og farið í önnur mál. Þar voru ýmis mál rædd sem verður kannski farið ofan í seinna.
Kjörnir og endurkjörnir menn í stjórn eru:
Gísli Birgir Gíslason Formaður.
Meðstjórnendur
Ágúst Erling Kristjánsson.
Finnur Eiríksson.
Sigmundur Rúnar Karlsson.
Árni Pálsson.
Kríunes á Vatnsenda.
01.03.2012 03:20
Aðalfundur
Aðalfundur Fornvélafélags Íslands 2012 verður haldinn Laugardaginn 24 mars kl 14:00. Vinsamlegast takið frá tíma fyrir þennan fund.Fundarefni verður kynnt síðar. Fundurinn verður að þessu sinni í Kríunesi Vatnsenda Reykjavík.
|
|
|
Kríunesið er í Kópavogi staðsett við Elliðavatn, vestanmegin í landi Vatnsenda. Um 15 km. frá miðbæ Reykjavíkur. Stutt er í ýmsa þjónustukjarna s.s. Smáralind (ca.6. km.) og Mjódd (ca.5. km.) Strætó gengur í hverfið og er ca. 10 mín. gangur í næstu strætóstöð.
Akstursleiðbeiningar frá Mjódd Komið að hringtorgi og fylgt síðustu beygju út, komið að öðru hringtorgi og þú einnig tekur síðustu beygju út og niður að Elliðavatni. |
- 1
